Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 902, 153. löggjafarþing 429. mál: menningarminjar (aldursfriðun húsa og mannvirkja).
Lög nr. 126 28. desember 2022.
Þingskjal 902, 153. löggjafarþing 429. mál: menningarminjar (aldursfriðun húsa og mannvirkja).
Lög nr. 126 28. desember 2022.
Lög um breytingu á lögum um menningarminjar, nr. 80/2012 (aldursfriðun húsa og mannvirkja).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 29. gr. laganna:- Í stað orðanna „eru 100 ára eða eldri“ í 1. mgr. kemur: byggð voru árið 1923 eða fyrr.
- Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Stofnuninni er heimilt að setja skilyrði um slíkar framkvæmdir eða gera tillögu um friðlýsingu umrædds húss eða mannvirkis.
2. gr.
Í stað ártalsins „1925“ í 1. málsl. 1. mgr. 30. gr. laganna kemur: 1940.3. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2023.Samþykkt á Alþingi 16. desember 2022.